Algeng sjónvilla - virkar breiðari en hann er
Sökum byggingarlags Hummersins þar sem saman fara hámarkshæð undir lægsta punkt og lár þyngdarpunktur; þá virkar bíllinn breiður miðað við hæð á yfirbyggingunni. Það er því algengt mat manna að Hummerinn sé breiðari en hann er í raun og veru.

Breiddin á Hummer er 219.7 sm sem er á milli ytri byrða hurða, mesta breidd á milli hjóla er 213.7 sm. Til viðmiðunar má benda á að breidd flestra jeppa sem eru á 38" - 44" dekkjum er á bilinu 210 sm - 250 sm.

Nánar um Hummer á 38" eða 44" dekkjum á næstu síðu.

Áfram - Continue