Hummer á 38
Spurningin um hvaða möguleika HUMMER býður upp á til breytinga kemur óneitanlega fram þegar kostir hans til fjallaferða eru hugleiddir. Hummerinn kemur á 37" dekkjum frá framleiðanda. Lítið eitt stærri dekk og belgmeiri til dæmis 38" sem gagnast betur til aksturs í snjó og á jöklum, krefjast engra breytinga á yfir- byggingu.

Þrátt fyrir aðra hjólbarða og felgur er hægt að nýta áfram hinn sérstaka búnað Hummersins, svonefnt CTIS-kerfi (Central Tire Inflation System), sem gerir ökumanni kleift að breyta loftþrýsingi í hjólbörðum með því einu að hreyfa rofa í mælaborði. Gildir það hvort sem bíllinn er á ferð eða kyrrstæður og á við hvort heldur sem er eitt dekk eða öll fjögur. Einnig nýtist affelgunarvörnin áfram þrátt fyrir að skipt sé um hjólbarða. Þetta tryggir að ekki er hægt að missa dekk af felgu þótt ekið sé við erfiðustu skilyrði í miklum hliðarhalla.

Hummer á 38
Það þarfnast ekki mikilla breytinga að setja Hummer á 44" dekk. Bíllinn er þannig úr garði gerður að ekki þarf að hækka hann upp eða eiga við drif- eða stýrisbúnað. Breytinga er þó þörf á vélarhlíf bílsins sem þarf að rúma stærri hjólbarða en áður. Hummer- umboðið hefur því hannað nýja vélarhlíf með stærri hjólaskálum sem rúma 44" hjólbarða án þess að fjöðrunargeta eða beygjuradíus skerðist. Engra breytinga er þörf á hjólaskálum að aftan sem geta auðveldlega tekið við 44" hjólbörðum og CTIS-kerfið ásamt affelgunarvörninni nýtist áfram.

Áfram - Continue