Í samanburði við aðra bíla er Hummerinn ódýr þegar tekið er tillit til rekstrar kostnaðar og langvarandi endingar. Samkvæmt amerískum bílablöðum kemur í ljós að ending Hummers er margföld á við hefðbundinn jeppa og kannanir hafa sýnt að ef verðmismunur er á milli bílanna borgar hann sig upp í lágum viðhaldskostnaði, á stuttum tíma.
Þetta sannar könnun sem unnin var að óháðum aðila, NATC (Nevada Automotive Test Center) sem er sérhæft fyrirtæki í úttekt og mati á farartækjum og hefur reynt framleiðslugæði bifreiða og farartækja, fyrir her og almennann markað frá árinu 1957.
|